top of page

Samningastýring 

Þegar kemur að innkaupum opinberra aðila er mikilvægt að vel sé staðið að framkvæmd þeirra, þannig að tryggt sé að sjálft innkaupaferlið sé í samræmi við ákvæði laga um opinber innkaup og að samningur sá, sem tekur við að loknu innkaupaferli, sé vandaður og skýr.


Þá er virk samningsstjórnun á samningstíma ekkert síður mikilvæg. Ef hún er ófullnægjandi er hætta á því að ávinningur þess að vel var staðið að undirbúningi innkaupa og gerð samningsskilmála skili kaupanda, eftir allt, litlum sem engum ávinningi.

Við bjóðum upp á heildstæða ráðgjöf og lausnir fyrir alla þætti samningastýringar — allt frá undirritun samnings til loka hans.

Með virkri samningsstjórnun er m.a. tryggt að:

  •  skyldum samningsaðila sé framfylgt,

  • gæði séu í samræmi við ákvæði samnings,

  • endurgjald sé í samræmi við ákvæði samnings,

  • breytingar á endurgjaldi séu í samræmi við ákvæði samnings,

  • samskipti samningsaðila séu tryggilega skjalfest,

  • eftirlit samkvæmt samningi sé framfylgt,

  • brugðist sé við vanefndum á viðeigandi hátt,

  • komið sé í veg fyrir að umsamin vanefndaúrræði  glatist,

  • rétt sé staðið að breytingum á samningi,

  •  rétt sé staðið að tilkynningum í tengslum við breytingar á samningi,

  • og faglega sé staðið að undirbúningi samningsloka.

Af hverju skiptir samningastýring máli?

Lög og reglugerðir um opinber innkaup eru í ýmsum atriðum bæði ítarlegar og flóknar og afmarkast ekki við sjálft innkaupaferlið, heldur ná einnig til framkvæmdar samninga á gildistíma þeirra. Brot á reglum um opinber innkaup geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir kaupendur. Samkvæmt lögum um opinber innkaup er kaupandi skaðabótaskyldur vegna þess tjóns sem brot á lögunum getur haft í för með sér fyrir fyrirtæki.


Consensa býður viðskiptavinum sínum upp á virka samningsstjórnun sem er sniðin að þörfum hvers og eins viðskiptavinar og tekur mið af eðli og umfangi samnings hverju sinni.

single-one-line-drawing-attractive-businessman-mark-checklist-with-pencil-person-completio
bottom of page