top of page

Innkaupaþjónusta eins og hún á að vera

Complex procurement process

Consensa veitir ráðgjöf og þjónustu á sviði opinberra innkaupa með það að leiðarljósi að vera traustur samstarfsaðili sem viðskiptavinir okkar geta ávallt leitað til. Við veitum viðskiptavinum okkar innkauparáðgjöf og innkaupaþjónustu og tökum að okkur framkvæmd útboða, óháð tegund innkaupa.

Innkaupaþjónusta & ráðgjöf

Innkaupaþjónusta og ráðgjöf

Við veitum viðskiptavinum okkar innkauparáðgjöf og innkaupaþjónustu og tökum að okkur framkvæmd útboða, óháð tegund innkaupa.

Aðstoð við bjóðendur

Við aðstoðum bjóðendur í tengslum við þátttöku þeirra í opinberum innkaupaferlum og aðstoðum bjóðendur við að skjóta ágreiningsmálum til kærunefndar útboðsmála.

Virk Samningsstjórnun

Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á virka samnings-stjórnun sem er sniðin að þörfum hvers og eins viðskiptavinar og tekur mið af eðli og umfang samnings.

Lög og reglugerðir um opinber innkaup eru í ýmsum atriðum bæði ítarlegar og flóknar. Brot á reglum um opinber innkaup geta haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir bæði kaupendur og bjóðendur. Samkvæmt lögum um opinber innkaup er kaupandi skaðabótaskyldur vegan þess tjóns sem brot á lögunum hefur í för með sér fyrir fyrirtæki.

Hjá okkur starfa sérfræðingar með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu í opinberum innkauparétti og útboðsgerð. Við veitum fyrirtækjum, sveitarfélögum, stofnunum og öðrum opinberum aðilum alhliða innkaupaþjónustu og lögfræðiráðgjöf.

Consensa logo

Umsagnir viðskiptavina

“Birgir tók að sér framkvæmd inn-kaupanna og leysti verkefnið óaðfinnanlega. Við mælum hiklaust með þjónustu Consensa”

Herdís Á. Sæmundsdóttir - sviðstjóri
Skagafjörður

“Öll vinnubrögð eru vönduð og þekking á opinberum innkaupum yfirgripsmikil og góð. Mælum eindregið með þjónustunni”

Atli Geir Júlíusson — Sviðstjóri 
Grindavíkurbær

Rafrænt innkaupaferli

Hjá Consensa fara öll útboð fram með rafrænum hætti í gegnum útboðskerfið Tendsign. Tendsign er veflægt og notendavænt útboðskerfi sem er öllum bjóðendum aðgengilegt á endurgjalds. Í útboðskerfinu er hægt að nálgast öll útboðsgögn, skoða breytingar, senda fyrirspurnir og skila inn tilboðum.

E-Procurement Software

ENGIN ÞÖRF Á OPNUNARFUNDUM

Engin þörf er á fjölmennum opnunarfundum í útboðum sem fara fram með rafrænum aðferðum í gegnum útboðskerfi. Það leiðir til mikils tímasparnaðar fyrir alla

aðila útboðsins og kemur í veg fyrir

smithættu vegna Covid-19.

E-Procurement Software

HVENÆR SEM ER

Frestur til að skila inn tilboðum getur verið alla tíma sólarhringsins og alla daga ársins. Bjóðendur geta, með einföldum hætti, sent inn tilboð, breytt tilboði eða afturkallað tilboð hvenær sem er á tilboðstíma.

E-Procurement Software

ÖRUGGARA INNKAUPAFERLI

Rafrænt útboðskerfi dregur úr hættu á mistökum í innkaupaferlinu og eykur gagnsæi. Bjóðendur geta sent inn tilboð með góðum fyrirvara og kerfið sér til þess að tilboð bjóðenda verða útboðs-aðilum ekki sýnileg fyrr en eftir að tilboðsfresti er lokið.

E-Procurement Software

HAGKVÆMUR VALKOSTUR

Með rafrænu útboðskerfi er komið í veg fyrir það að bjóðendur þurfi að prenta út öll útboðsgögn í tvíriti og þurfi að sjá til þess að þau sé afhent á réttum stað og á réttum tíma. Rafrænt útboðskerfi sparar sporin og dregur verulega úr umsýslukostnaði fyrir alla aðila útboðsins.

E-Procurement Software

EINFALT AÐ TAKA ÞÁTT

Aðgangur bjóðenda að útboðs-kerfinu er án endurgjalds. Skráningarferlið er einfalt og auðvelt er að taka þátt og senda inn tilboð. Í útboðskerfinu er hægt að nálgast öll útboðsgögn, senda fyrirspurnir og skila inn tilboðum.

E-Procurement Software

STYTTRA ÚTBOÐSFERLI

Heimilt er að stytta tilboðstíma þegar innkaupaferli fer fram með rafrænum hætti í gegnum rafrænt útboðskerfi. Gagna-framsetning er skilvirkari og úrvinnsla og mat tilboða er einfaldari sem leiðir til mikils tíma sparnaðar fyrir alla aðila útboðsins.

Bókaðu ráðgjöf

Hafðu samband til að bóka ráðgjöf með sérfræðingum okkar.

Consensa logo

Fylgstu með okkur

  • Facebook
  • LinkedIn
Eipa verification logo

Hafðu samband

Consensa ehf.
Kt.: 690607-1310
Laugavegur 27a, 101 Reykjavík

Sími: +354 650 5040
Netfang: consensa@consensa.is

Allur réttur áskilinn © Consensa 2019 – 2025

bottom of page